fimmtudagur, 17. júlí 2014

WHO'S // HÖRÐUR INGASON

Hörður Ingason er 27 ára gamall hæfileikaríkur ljósmyndari búsettur í Köben, Hann útskrifaðist sem ljósmyndari frá the Danish School of Photography árið 2011. Við fengum aðeins að forvitnast um sjomlan.














Hvað hefur þú verið að bralla?
Var að kaupa sófa um daginn! …annars bara taka myndir og njóta sumarsins. ÁTTU ÞÉR UPPÁHALDS...
...lag? Northern Lights með Kate Boy ...mynd? Kill Bill nr 01 get jeg horft á aftur og aftur. Eða kannski Into the Wild. ...mat? Murgh Makhani ...listamann? Einar Jónsson
...ljósmyndara? Philip Halsmann ...síðu? www.zverige.com/kingkong ...stað? New York ...drykk? Kók ...blað? i-D

Hvar er hægt að fylgjast með þér?
www.horduringason.com/

MYNDIR EFTIR HÖRÐ



miðvikudagur, 16. júlí 2014

SNILLD DAGSINS


Snilld dagsins er nýja myndbandið frá Lykke Li!

ONE TO WATCH // SNOOZE INFINITY

Emil Svavars er 22 ára gamall tónlistarmaður sem væri heví til í að vera Köngulóarmaðurinn ef hann mætti vera hvaða teiknimyndapersóna sem er. Ekki bara gerir Emil raftónlist undir nafninu Snooze Infinity en hann er líka trommari í hljómsveitunum Muurk og VALD.  Við tékkuðum á Emil og fengum að vita smá um hann eins og hvaða ofurkrafta hann væri til í að hafa annað en að vera Spiderman og hvaða plötu hann væri til í að hafa skrifað.
Deer: Hvenær byrjaðiru að gera tónlist?
Emil: Ég byrjaði að spila á trommur þegar ég var 9 ára gamall. Ég hafði strax mikinn áhuga á að búa til tónlist, bæði að spila með hljómsveitum sem ég stofnaði með vinum mínum (með misgóðum árangri) og að búa hana til í tölvunni. Ég man eftir að hafa fiktað í fullt af forritum þegar ég var krakki en svo var það í áttunda bekk þegar ég byrjaði að nota Abelton Live og ég hef ekki slitið mig frá því síðan.

D: Hvaða tónlistarverkefnum ertu að vinna í núna?
E: Núna er ég að leggja mesta áherslu á sólóverkefnið mitt. Snooze Infinity. Fyrir utan það er ég að tromma með hljómsveitunum Murrk og nýstofnaða rafjazzbandinu VALD.

D: Áttu þér einhverja falda hæfileika?
E: Já ég er ógjeðslega góður í stafsentingu

D: Hvaða plötu værir þú til í að þú hefðir skrifað?
E: Það eru náttúrulega svo margar góðar en ég ætla að segja Leaving Home með Solar Fields því hún er búin að vera á repeat gjá mér síðustu vikur.

D: Hver eru framtíðarplönin?
E: Klára trommunámið mitt í FÍH og fara síðan út að læra hljóðverkfræði. Vonandi vinna við tónlist, Allavega koma mér þannig fyrir að ég get haldið áfram að búa hana til. Þá verð ég sáttur. 

D: Hvað er það skrítnasta comment sem einhver hefur sagt um tónlistina þína?
E: Þegar ég var út í Litháen að spila með Murrk síðasta sumar sagði einhver gaur: "It's like when you're playing a game, and you're catching a ball... And you catch it!"



Hvaða topp 5 ofurkrafta væriru til í að hafa?
1) Ofurhraði, svona eins og gráhærði gaurinn í nýju X-Men
2) Að geta verið ósýnilegur
3)Teleportation
4)Að vera Spiderman
5)Geta smitað ást og frið í sálir fólks með að horfa á það.


PHARRELL & TÝNDA PLATAN


Það vita allir hver Pharrell er nú til dags. Þótt að Pharrell sé það heitasta undir sólinni þessa dagana og er þekktastur núna fyrir Happy, Get Lucky og Blurred Lines er hann búin að vera að gera síðustu 15 ár endalaust af hitturum án þess að fólk muni eftir því eða viti að hann hafi gert lagið. Það má nefna ógelymanlega partíplaylistalagið Drop it like it's hot með Snoop Dogg eða Rock Your Body með Justin Timberlake. Svo má ekki gleyma amazeballs snilldinni sem eru fyrstu þrjár N.E.R.D. plöturnar.
Árið 2006 gaf Pharrell fyrstu sólóplötuna sína In My Mind sem náði ekki vinsældunum sem hljómsveitin hans á þessum tíma N.E.R.D fékk. Platan var flopp. 
Henni var fljótt gleymt en Pharrell vildi ekki gefast upp á henni og bað góða vini sína Questlove og James Poyser frá The Roots að endurpróducera hana og gaf þeim 10 daga til að gera það.



Label-ið hélt að endurbætta platan myndi ekki seljast enda failaði hin illilega (miðað við Pharrell) og ákvað að gefa ekki út plötuna. Svo Questlove tók það í sínar hendur og setti alltaf eitt og eitt lag inn á netið og ákvað svo að gefa öllum aðdáendum lagana smá jólagjöf og setti alla plötuna á netið um jólin 2007.
Það er synd hvað þessi snilldar snilld lög frá þessari plötu eru óþekkt því þau voru bara gefin út á netinu sérstaklega :
That Girl  ft Snoop Dogg:


Number One ft Kanye West:



Can I Have It Like That ft Gwen Stefani : 




Questlove og The Roots náðu að setja smá soul, groove og funk við áður frekar boring lög og mælum við með að þið tékkið á þeim eða bara tékka á öllu sem Pharrell hefur gert, ekki vera lame og þekkja bara Happy!
Þið getið séð behind the scenes af þeim gera plötuna hér
Tékkið á allri plötunni hér

mánudagur, 14. júlí 2014

SNILLD DAGSINS


Listahátíðin LungA hófst í gær í fjórtánda skipti. Um er að ræða listahátíð þar sem sköpun, listum og menningu er fagnað með , fyrirlestrum og öðrum viðburðum og lýkur með uppskeruhelgi: sýningum og tónleikum. Hátíðin er frábær blanda af listum, sköpun, tjáningu og stórbrotinni náttúru. Hátíðin er snilldar snilld!